Skíðaferð um jólin á frábæru verði - 19.12 2026 - 26.12. 2026

Frá kr. 180.000,- pr. mann fyrir gistingu, morgunverð og þriggja rétta kvöldverð (50% afsláttur fyrir börn 6-11 ára)

Hotel Speiereck er á frábæru skíðasvæði þar sem hægt er að fara á um sex svæði og hæsti tindur stendur í 3.800 metrum yfir sjávarmáli. Ein þekktasta skíðabrekkan er á milli St. Margarethen og Katschberg sem er um 6,7 km. löng. Einnig er Speiereck tindurinn í 2400m hæð og brekkan þar niður heim að hóteli 6,3 km. löng.

Hótelið er með 15 útleiguherbergi og Óli Gísli kokkur og Guðrún Vala sjá um að láta fólki líða vel, leiðbeina fólki um skíðapassa, leigu og hvert skal halda.

Hægt er að bóka beint á heimasíðu okkar en einnig hægt að hafa samband á info@hotelspeiereck.com eða guffig@simnet.is eða í síma 8928583.

Icelandair flýgur beint til Salzburg og tekur um 90 mínútur að keyra á hótelið þaðan eða hægt að fljúga til Munchen en þaðan tekur það þrjá tíma að komast á hótelið.

 

Yfirlitskort yfir skíðasvæðin í Lungau